Grenigrund 2, 800 Selfoss
88.300.000 Kr.
Parhús
6 herb.
168 m2
88.300.000
Stofur
2
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
1996
Brunabótamat
89.500.000
Fasteignamat
88.150.000

Litla Fasteignasalan s: 482-9900 kynnir 
Rúmgott 4 herbergja enda parhús með auka notkunarrými og bílskúr
Með snyrtilegum palli í grónum suðurgarði. 
Eignin er 168,4 m2 og þar af er bílskúrinn skráður 35,6 m2

Lýsing eignar:
Forstofa með flísum á gólfi og fataskáp
Borðstofa / eldhús og stofa eru í sameiginlegu rými með mikilli lofthæð.
Stofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi og hurð út á pall til suðurs.
Eldhús er rúmgott með flísum á gólfi, innréttingu, eyju, spanhelluborði og bakarofn og tengi fyrir uppþvottavél. 
Hjónaherbergi með stórum fataskáp, parket á gólfi og hurð út í bakgarðinn.
Svefnherbergi 2 með fataskáp og parketi á gólfi.
Svefnherbergi 3 með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi með flísum gólfi, stóru horn baðkari / sturtu, innréttingu, upphengdu salerni og tengi er fyrir þvottavél.
Inn af forstofu er eins konar viðbótar eining...
Fjórða herbergið með útgönguhurð og þar inn af er...
lítið eldhús svæði / þvottahús - með lítilli innréttingu, helluborði, vask og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Baðherbergi með sturtuklefa, salerni og handlaug.
Bílskúr með góðri bílskúrshurð og hilluplássi.
Sjá staðsetningu

Stór pallur er fyrir framan húsið með skjólveggjum að hluta og grónum 
fallegum garði sem snýr til suðurs. Á pallinum er heitur pottur.
Einnig er pallur fyrir aftan hús og lítill geymslukofi.
Innkeyrsla er stór og malarborin. 

Enda eign í botnlanga í frábæru hverfi

Nánari upplýsingar veitir
Sigþrúður J. Tómasdóttir
sími 892-0099   [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Litla Fasteignasalan benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.